Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. febrúar 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sancho hrifinn af Chelsea - Kostar 140 milljónir evra
Mynd: Getty Images
Úrvalsdeildin er möguleiki hjá Sancho og mér finnst Chelsea líklegt til að hafa áhuga. Sancho er hrifinn af Chelsea," sagði Kevin Hatchard.

Hatchard, sem lýsir leikjum í Bundesliga, bætti við: „Persónulega finnst mér að Sancho sé virði um 140 milljónum evra, það finnst mér sanngjarnt verð."

Jadon Sancho verður tvítugur í mars. Hann hefur leikið með Dortmund frá árinu 2017 og eru mörg stórlið með hann á lista hjá sér.

Manchester United, Manchester City, Liverpool og Chelsea eru þau lið sem hvað oftast eru orðuð við vængmanninn unga.
Athugasemdir
banner