Ashley Young átti frábæran leik er Manchester United lagði Liverpool að velli með tveimur mörkum gegn einu í enska boltanum á laugardaginn.
Young fékk það erfiða verkefni að passa uppá Mohamed Salah sem hefur verið í fantaformi á tímabilinu.
Young fékk það erfiða verkefni að passa uppá Mohamed Salah sem hefur verið í fantaformi á tímabilinu.
Salah sá ekki til sólar í leiknum og fékk Young mikið lof fyrir frammistöðu sína.
Hann birti mynd af sér á Instagram í dag þar sem hann er á æfingu með Rauðu djöflunum.
„Hættið að spyrja mig! Hann er ekki í vasanum mínum, ég sver það," skrifaði Young við myndina, sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Ashley Young throwing some serious shade on IG 👀 pic.twitter.com/QDWPol0lNT
— 101 Great Goals (@101greatgoals) March 12, 2018
Athugasemdir