Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 12. mars 2018 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
England: David Silva afgreiddi Stoke
Mynd: Getty Images
Stoke 0 - 2 Man City
0-1 David Silva ('10)
0-2 David Silva ('50)

Stoke City átti ekki séns í Manchester City er liðin mættust í eina leik dagsins. David Silva gerði bæði mörk City í auðveldum sigri.

Fyrsta markið kom eftir frábærlega vel útfærða sókn gestanna. Gabriel Jesus gaf stungusendingu á Raheem Sterling sem senti inn í galopinn vítateiginn, þar sem Silva var ekki í neinum vandræðum með að klára dæmið.

City hefði getað bætt við nokkrum mörkum áður en Silva tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik.

Seinna markið kom eftir glæsilegt samspil Silva og Jesus sem endaði með því að Silva kláraði færið eftir úthlaup hjá Jack Butland.

Stoke er stigi frá öruggu sæti þegar átta umferðir eru eftir af tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner