mán 12. mars 2018 21:58
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Werder Bremen með annan sigur
Bremen er búið að fá 13 stig úr síðustu 6 leikjum.
Bremen er búið að fá 13 stig úr síðustu 6 leikjum.
Mynd: Getty Images
Werder Bremen 3 - 1 Köln
1-0 M. Veljkovic ('33)
1-1 Y. Osako ('53)
2-1 M. Rashica ('58)
3-1 M. Eggestein ('90)

Aron Jóhannsson kom ekki við sögu í góðum 3-1 sigri Werder Bremen gegn botnliði Kölnar.

Milos Veljkovic kom Bremen yfir í fyrri hálfleik en Yuya Osako jafnaði fyrir gestina snemma í þeim síðari.

Milot Rashica kom heimamönnum aftur yfir skömmu síðar og innsiglaði Maximilian Eggestein sanngjarnan sigur á lokamínútunum.

Aron og félagar eru fimm stigum fyrir ofan umspilssæti um fall. Köln er á botninum, átta stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner