Danska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt að öllum leikjum í landinu verði aflýst til sunnudagsins 29. mars vegna kórónuveirunnar.
Danir hafa gripið til harðra aðgerða vegna veirunnar og skólahald hefur verið fellt niður næstu tvær vikurnar.
Danir hafa gripið til harðra aðgerða vegna veirunnar og skólahald hefur verið fellt niður næstu tvær vikurnar.
Í dag var síðan tilkynnt að allir leikir í Danmörku falli niður í öllum deildum sem og allar æfingar yngri landsliða.
Fyrirhuguðum vináttuleikjum gegn Færeyingum 27. mars og Englandi 31. mars verður væntanlega einnig aflýst.
Athugasemdir