Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 12. mars 2020 14:21
Elvar Geir Magnússon
Gabbiadini er með kórónaveiruna
Mynd: Getty Images
Sampdoria hefur tilkynnt að sóknarmaðurinn Manolo Gabbiadini hafi greinst með kórónaveiruna.

Hann er annar leikmaðurinn í ítölsku A-deildinni sem greinist með veiruna en Inter og Juventus eru í sóttkví eftir að varnarmaðurinn Daniele Rugani greindist.

Gabbiadini er fyrrum leikmaður Southampton en hann spilaði í enska boltanum 2017-19.

Tveir leikmenn þýska B-deildarliðsins Hannover hafa greinst með veiruna og þá er grunur um að smit í leikmannahópi enska úrvalsdeildarliðsins Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner