Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 12. mars 2020 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Greenwood yngsti leikmaður Man Utd til að skora 5 Evrópumörk
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood verður nítján ára eftir ríflega hálft ár. Hann hefur fengið þokkalega stórt hlutverk í lið Ole Gunnar Solskjær þrátt fyrir ungan aldur.

Greenwood kom í kvöld inn á sem varamaður í leik Manchester United gegn LASK Linz í Austurríki.

Greenwood skoraði fjórða mark United í kvöld eftir undirbúning Tahith Chong. Markið var tólfta mark Greenwood í öllum keppnum í vetur og fimmta markið hans í Evrópudeildinni,

Greenwood varð með markinu í kvöld yngsti leikmaður í sögu United til að skora fimm mörk í Evrópukeppni. Greenwood er ríflega ári yngri en George Best sem var áður sá yngsti.


Athugasemdir
banner
banner
banner