Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 12. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmenn Colo-Colo gengu inn með munaðarlausa hunda
Mynd: Getty Images
Leikmenn Colo-Colo frá Síle gengu inn á völlinn með munaðarlausa hunda í stað lukkubarna í 1-2 sigri gegn Serena í síðustu viku.

Þetta er partur af átaki í Síle þar sem verið að berjast gegn því að hundar séu skildir eftir úti á götum.

Gríðarlega mikið er um munaðarlausa hunda í landinu og hefur þessi ákvörðun Colo-Colo vakið þarfa umræðu.

Colo-Colo er sögufrægt lið í Síle en hefur farið illa af stað í ár og er með sjö stig eftir sjö deildarleiki. Næsti leikur liðsins er gegn Athletico Paranaense í suður-amerísku Meistaradeildinni í kvöld.

Colo-Colo tapaði fyrri leiknum 2-0 á útivelli.

Athugasemdir
banner
banner