Brynjar Ingi skoraði annað mark KA í kvöld. Hér er hann í baráttunni við Kristinn Þór Rósbergsson í Boganum í kvöld.
KA 2 - 0 Magni
1-0 Sveinn Margeir Hauksson ('36 )
2-0 Brynjar Ingi Bjarnason ('76)
1-0 Sveinn Margeir Hauksson ('36 )
2-0 Brynjar Ingi Bjarnason ('76)
KA mætti Magna í Boganum í kvöld. Liðin leika í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins.
Sveinn Margeir Hauksson kom KA yfir með marki á 36. mínútu leiksins og Brynjar Ingi Bjarnason skoraði annað mark KA á 76. mínútur.
Lokatölurnar urðu 2-0 og er KA með sjö stig eftir fimm umferðir. Magni er með núll stig eftir fjóra leiki og hafa Grenvíkingar skorað eitt mark.
Athugasemdir