Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 12. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu hvers vegna Emre Can var rekinn af velli
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-0 tap gegn Paris Saint-Germain í gærkvöldi.

Heimamenn í PSG voru 2-0 yfir þegar Emre Can var rekinn af velli á 89. mínútu. Miðjumaðurinn fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili, eitt fyrir að brjóta á Neymar og annað fyrir að hrinda honum í jörðina eftir brotið.

Átök sköpuðust í kjölfarið þar sem Neymar, Marquinhos og Angel Di Maria fengu allir gult.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá upphaf átakanna; brot Emre Can og viðbrögð Neymar.


Athugasemdir
banner
banner