Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. mars 2021 15:11
Magnús Már Einarsson
Agla María framlengir við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Agla María Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Breiðablik.

Hin 21 árs gamla Agla hefur skorað 73 mörk í 92 leikjum með Blikum og verið í lykilhlutverki hjá félaginu undanfarin ár.

Agla hefur á síðustu þremur árum hjálpað Blikum að land tveimur Íslands- og bikarmeistaratitlum. Þá hefur hún spilað 33 leiki með A-landsliðinu og þar áður 27 leiki með yngri landsliðum.

„Ekki þarf að fjölyrða um hversu ánægjuleg tíðindi það eru að Agla María verði áfram í Kópavoginum, enda hefur hún verið meðal bestu leikmanna landsins síðustu ár og átt fast sæti í landsliðinu," segir á Facebook síðu Breiðabliks.

„Það verður gaman að fylgjast áfram með henni í græna búningnum að hrella varnarmenn með tækni sinni og snerpu, auk þess sem hún er mikilvæg fyrirmynd fyrir yngri iðkendur innan félagsins💚⚽️"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner