Blackburn 0 - 1 Brentford
0-1 Ivan Toney ('10 , víti)
0-1 Ivan Toney ('10 , víti)
Brentford er komið upp í 2. sæti ensku B-deildarinnar eftir 1-0 sigur á Blackburn Rovers í kvöld.
Ivan Toney gerði eina mark leiksins á 10. mínútu úr vítaspyrnu en þetta var 26. deildarmark Toney á leiktíðinni.
Hann er markahæsti leikmaður deildarinnar en Teemu Pukki, framherji Norwich, kemur næstur á eftir honum með 20 mörk.
Brentford er eins og áður segir í 2. sæti deildarinnar með 66 stig á meðan Blackburn er í 14. sæti með 44 stig.
Athugasemdir