Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. mars 2021 22:07
Brynjar Ingi Erluson
England: Dramatískar lokamínútur á St. James' Park
Jamaal Lascelles skoraði jöfnunarmark Newcastle
Jamaal Lascelles skoraði jöfnunarmark Newcastle
Mynd: Getty Images
Newcastle 1 - 1 Aston Villa
0-1 Ciaran Clark ('86 , sjálfsmark)
1-1 Jamaal Lascelles ('90 )

Newcastle United og Aston Villa gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðin mættust á St. James's Park en lokamínúturnar voru vægast sagt dramatískar.

Brasilíski framherjinn Joelinton kom sér í ágætis færi á 14. mínútu en hann tók aðeins of margar snertingar og rann færið honum úr greipum.

Fátt annað markvert gerðist í fyrri hálfleiknum. Á 82. mínútu var Jacob Murphy nálægt því að koma Newcastle yfir er hann átti skot í slá.

Fjórum mínútum síðar skoraði Aston Villa. Matt Targett átti fyrirgjöf á hausinn á Ollie Watkins sem skallaði í átt að marki en boltinn fór af Ciaran Clark og í netið. Clark fékk skráð markið á sig þar sem boltinn breytti augljóslega um stefnu.

Þegar það voru komnar fjórar mínútur fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Jamaal Lascelles metin með skalla eftir fyrirgjöf frá Murphy. Síðasta færi leiksins og lokatölur 1-1.

Newcastle í 16. sæti með 28 stig en Villa í 9. sæti með 41 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner