fös 12. mars 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Íslendingaslagur og stórleikir
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það er nóg um að vera í enska boltanum um helgina og byrjar boltinn að rúlla í kvöld þegar Newcastle tekur á móti Aston Villa.

Leeds og Chelsea eigast svo við í æsispennandi hádegisleik á morgun áður en Everton og Burnley kljást í mögulegum Íslendingaslag. Þar gætu Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson mæst.

Manchester City heimsækir svo nýliða Fulham í lokaleik laugardagsins.

Sunnudagurinn er áhugaverður þar sem Southampton og Leicester eiga heimaleiki áður en Arsenal og Tottenham mætast í hatrömmum fjandslag í Norður-London. Bæði lið unnu í Evrópudeildinni á fimmtudaginn en sjö stig skilja liðin að á úrvalsdeildartöflunni.

Eftir þennan stórleik er gríðarlega spennandi leikur á dagskrá þar sem Manchester United tekur á móti spútnik liði tímabilsins, West Ham United.

Síðasti leikur umferðarinnar fer svo fram á mánudagskvöldið, þegar Wolves tekur á móti fráfarandi Englandsmeisturum Liverpool.

Síminn er með sýningarréttinn á enska boltanum.

Föstudagur:
20:00 Newcastle - Aston Villa

Laugardagur:
12:30 Leeds - Chelsea
15:00 Crystal Palace - West Brom
17:30 Everton - Burnley
20:00 Fulham - Man City

Sunnudagur:
12:00 Southampton - Brighton
14:00 Leicester - Sheffield Utd
16:30 Arsenal - Tottenham
19:15 Man Utd - West Ham

Mánudagur:
20:00 Wolves - Liverpool
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner