Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. mars 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Gylfi tæpur fyrir morgundaginn - Doucoure frá í 8-10 vikur
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður Everton, er tæpur fyrir leik liðsins gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni síðdegis á morgun.

Gylfi hefur verið að glíma við meiðsli á ökkla og það skýrist betur eftir æfingu hjá Everton í dag hvort hann spili á morgun.

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.

Ancelotti greindi einnig frá því að Abdoulaye Doucoure, miðjumaður Everton, verði lítið meira með á tímabilinu.

Doucoure verður frá keppni næstu átta til tíu vikurnar eftir að hafa fótbrotnað.
Athugasemdir
banner
banner