Þór 0 - 5 Víkingur R.
Mörk Víkings: Helgi Guðjónsson 2, Kristall Máni Ingason, Einar Guðnason og sjálfsmark.
Mörk Víkings: Helgi Guðjónsson 2, Kristall Máni Ingason, Einar Guðnason og sjálfsmark.
Víkingur R. tók fyrsta sætið í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins er liðið vann Þór 5-0 í Boganum.
Helgi Guðjónsson skoraði tvö mörk fyrir Víkinga í leiknum en Kristall Máni Ingason komst einnig á blað.
Það vakti þó mesta athygli að Einar Guðnason, aðstoðarþjálfari liðsins, skoraði í leiknum en hann kom inn af bekknum Hann fékk félagaskipti yfir í Víking í gær og var fljótur að minna á sig.
Einar, sem er 36 ára, spilaði síðast fyrir Víking í Landsbankadeildinni árið 2006 en hefur spilað með Berserkjum frá 2007. Hann spilaði síðast mótsleik með Berserkjum árið 2019.
Víkingur tekur efsta sæti riðilsins með 13 stig og mun spila í 8-liða úrslitum bikarsins. Þór endar í neðsta sæti riðilsins og án stiga.
Athugasemdir