Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. mars 2021 10:40
Magnús Már Einarsson
Maguire: Ástæðan fyrir því að ég er varnarmaður en ekki sóknarmaður
Mynd: Getty Images
„Ég hefði átt að skora," sagði Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, eftir 1-1 jafnteflið gegn AC Milan í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

Maguire skaut í stöngina fyrir opnu marki í fyrri hálfleik en færið var með XG upp á 0,91.

„Ég ætla ekki að afsaka mig með þetta. Ég hefði átt að skora. Ég hefði átt að setja boltann í netið."

„Þetta er ástæðan fyrir því að ég er varnarmaður en ekki sóknarmaður. Ég hef engar afsakanir fyrir því að skora ekki."


Sjá einnig:
Sjáðu ótrúlegt klúður Harry Maguire
Athugasemdir
banner
banner