Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. mars 2021 23:52
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Dómari í Brasilíu meig á sig fyrir leik
Mynd: Getty Images
Það gerðust heldur betur undarlegir atburðir í brasilíska bikarnum á fimmtudag er Boavista og Goias áttust við en dómari leiksins meig á sig fyrir leikinn.

Denis da Silva Ribeiro Serafim dæmdi leikinn en rétt áður en leikurinn hófst var hann að gera sig kláran og laga stuttbuxurnar þegar það sést óvænt buna koma meðfram lærunum.

Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu og fór af stað mikil umræða í Brasilíu yfir þessu atviki sem síðan rataði í fjölmiðla.

Það hefur oft komið fyrir að leikmenn migi í laumi þar sem það gefst ekki tími til að yfirgefa völlinn en hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.

Sjáðu myndbandið hér
Athugasemdir
banner
banner