fös 12. mars 2021 15:30
Magnús Már Einarsson
Ólíklegt að De Gea snúi aftur á sunnudag
Mynd: Getty Images
Ólíklegt er að markvörðurinn David De Gea snúi aftur í leikmannahóp Manchester United gegn West Ham á sunnudag.

De Gea er kominn aftur til Englands eftir að hafa skroppið til Spánar til að vera viðstaddur þegar unnusta hans fæddi þeirra fyrsta barn.

Dean Henderson hefur staðið vaktina í síðustu leikjum og verður væntanlega áfram á milli stanganna á sunnudag.

De Gea þarf að klára sóttkví og undirgangast kórónuveirupróf áður en hann má byrja að spila.

Ólíklegt er að það náist fyrir sunnudaginn og ef De Gea fær leyfi til að mæta á svæðið þá er líklegt að hann byrji á bekknum þar sem hann hefur ekkert náð að æfa með liðsfélögum sínum undanfarnar vikur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner