Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. mars 2021 10:00
Magnús Már Einarsson
Ramos: Messi má búa hjá mér
Sergio Ramos
Sergio Ramos
Mynd: Getty Images
Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, segist vera tilbúinn að leyfa Lionel Messi að búa hjá sér ef Argentínumaðurinn er tilbúinn að koma til félagsins frá erkifjendunum í Barcelona.

Hinn 33 ára gamli Messi verður samningslaus í sumar og óvíst er hvort hann verði áfram hjá Barcelona.

„Að sjálfsögðu, 100%," sagði Ramos aðspurður hvort hann myndi taka Messi opnum örmum.

„Hann gæti búið hjá mér fyrstu vikuna eða svo. Hann gæti komist inn í hlutina og liðið vel, ég myndi glaður gera það."

„Við stuðningsmenn Madrid höfum þurft að þola bestu ár Leo (í öðru liði) og það væri frábært að þurfa ekki alltaf að mæta honum. Að hafa hann hjá okkur myndi hjálpa okkur að vinna og njóta meiri velgengni. Það væri heimskulegt að segja annað."


Athugasemdir
banner
banner
banner