Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. mars 2021 22:39
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Alexandra byrjaði í jafntefli
Alexandra var í byrjunarliði Frankfurt
Alexandra var í byrjunarliði Frankfurt
Mynd: Eintracht Frankfurt
Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir var í byrjunarliði í fyrsta sinn er Eintracht Frankfurt gerði 1-1 jafntefli við Meppen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Alexandra gekk í raðir Frankfurt frá Breiðabliki í janúar en hún þreytti frumraun sína í síðasta leik í 2-0 tapi gegn Hoffenheim en þá lék hún 25 mínútur.

Hún var í byrjunarliði Frankfurt í kvöld en var skipt af velli í hálfleik fyrir Laura FIeresinger.

Frankfurt er í 6. sæti deildarinnar með 18 stig eftir fjórtán leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner