fös 12. mars 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Bayern og Leipzig að stinga af
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það er nóg um að vera í þýska boltanum um helgina og hefst fjörið strax í kvöld þegar liðsfélagar Alfreðs Finnbogasonar í Augsburg taka á móti Borussia Mönchengladbach.

Alfreð verður ekki með í kvöld vegna meiðsla. Hann hefur átt í gríðarlega miklum erfiðleikum með að halda sér heilum undanfarin misseri.

Augsburg hefur átt erfitt með markaskorun á tímabilinu en er þó sjö stigum frá fallbaráttunni, en aðeins búið að skora 24 mörk í 24 leikjum.

Á morgun mætir topplið FC Bayern til leiks á útivelli gegn Werder Bremen. Borussia Dortmund, sem hefur gengið illa á deildartímabilinu, tekur á móti fallbaráttuliði Hertha Berlin.

Á sunnudaginn á RB Leipzig stórleik gegn Eintracht Frankfurt. Leipzig þarf sigur til að halda í við FC Bayern sem er með tveggja stiga forystu á toppnum.

Viaplay er með sýningarréttinn á þýska boltanum.

Föstudagur:
19:30 Augsburg - B. M'Gladbach

Laugardagur:
14:30 Werder Bremen - FC Bayern
14:30 Mainz - Freiburg
14:30 Union Berlin - Köln
14:30 Wolfsburg - Schalke 04
17:30 Dortmund - Hertha Berlin

Sunnudagur:
12:30 Leverkusen - Arminia Bielefeld
14:30 RB Leipzig - Eintracht Frankfurt
17:00 Stuttgart - Hoffenheim
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner
banner