Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, var ánægður með Kai Havertz í sigrinum á Everton á mánudag en leikmaðurinn spilaði þá sem „fölsk nía."
Havertz hefur spilað á kanti og miðju síðan hann kom frá Bayer Leverkusen síðastliðið sumar en hann spilaði vel í fremstu víglínu gegn Everton.
Havertz hefur spilað á kanti og miðju síðan hann kom frá Bayer Leverkusen síðastliðið sumar en hann spilaði vel í fremstu víglínu gegn Everton.
„Að mínu mati er besta staðan hans á milli níu og tíu þar sem hann hefur frjálsræði til að koma niður og hreyfa á sig á milli í tveimur stöðum," sagði Tuchel.
„Ég vil hafa hann í stöðum ofarlega á vellinum. Ég vil ekki hafa hann bakvið boltann og honum líður vel á milli línanna og í litlum vösum á vellinum."
Chelsea hefur verið á miklu skriði að undanförnu en liðið mætir Leeds á morgun.
Athugasemdir