Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 12. mars 2021 17:30
Elvar Geir Magnússon
Vidal fór í aðgerð á hné
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal, miðjumaðurinn reynslumikli í Inter, verður frá í u.þ.b. mánuð en hann gekkst undir vel heppnaða aðgerð á vinstra hné í morgun.

Þessi 33 ára Sílemaður gekk í raðir Inter frá Barcelona fyrir tímabilið en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Inter.

Hann var þó í byrjunarliðinu þegar Inter fagnaði sínum sjöunda sigri í röð þegar liðið lagði Atalanta í vikunni.

Inter er á toppi ítölsku A-deildarinnar, með sex stigum meira en grannarnir í AC Milan sem eru í öðru sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner