Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. mars 2021 07:00
Hafliði Breiðfjörð
Viltu starfa á skrifstofu KSÍ?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnusamband Íslands óskar eftir að ráða starfsmann á innanlandssvið á skrifstofu KSÍ.

Meginverkefni eru tengd mótamálum og niðurröðun móta, félagaskiptum og mannvirkjamálum, auk afleysinga og annarra tilfallandi verkefna.

Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku, ensku og hvers kyns tölvuvinnslu. Þá er æskilegt að umsækjandi hafi góða þekkingu á og brennandi áhuga fyrir knattspyrnu.

Umsóknarfrestur er til 19. mars og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ ([email protected]).

Umsóknum (ásamt sakavottorði) skal skilað með tölvupósti eigi síðar en 19. mars ([email protected]).

Stefnumótun KSÍ
Jafnréttisstefna og jafnréttisáætlun KSÍ
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner