Arsenal hefur hafið leit að stuðningsmanni sem var með kynþáttafordóma í garð Kalidou Koulibaly, varnarmanns Napoli, í Evrópudeildarviðureign liðanna í gær.
Arsenal vann leikinn 2-0 á Emirates en þetta var fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum.
Arsenal vann leikinn 2-0 á Emirates en þetta var fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum.
Í snapchat myndbandi sem náðist meðan á leik stóð má heyra þegar 'n-orðið' er notað um Koulibaly.
Í yfirlýsingu frá Arsenal segir að málið sé litið mjög alvarlegum augum, félagið sætti sig engan veginn við svona hátterni. Þeir sem hegði sér með þessum hætti séu ekki velkomnir hjá félaginu.
Arsenal er í leit að manninum.
Athugasemdir