Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 12. maí 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spurs mun ekki selja Ndombele - Liverpool og Barca hafa áhuga
Mynd: Getty Images
Tanguy Ndombele hafði ekki átt gott tímabil hjá Tottenham áður en COVID19 varð til þess að hlé þurfti að gera á keppnir vetrarins.

Ndombele var keyptur á 55 milljónir punda síðasta sumar og Jose Mourinho, sem tók við stjórnartaumunum hjá Tottenham í nóvember, er ekki stærsti aðdáandi miðjumannsins.

Barcelona, topplið spænsku La Liga, er sagt hafa áhuga á Ndombele og þá segja einhverjir fjölmiðlar frá áhuga Liverpool. Tottenham ætlar sér hvorki að lána Ndombele né selja hann þegar félagsskiptaglugginn opnar.

Ndombele er 23 ára gamall og hefur hann skorað tvö mörk í nítján leikjum í úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner