banner
   þri 12. maí 2020 15:22
Elvar Geir Magnússon
William Carvalho á óskalistum Leicester og Inter
William Carvalho.
William Carvalho.
Mynd: Getty Images
Daily Mail segir að William Carvalho, leikmaður Real Betis, sá á óskalistum Inter og Leicester fyrir sumarið.

Einnig er talað um að Mónakó hafi áhuga.

Þessi 28 ára varnarsinnaði miðjumaður hefur leikið vel fyrir Real Betis síðan hann var keyptur þangað frá Sporting Lissabon sumarið 2018.

Leicester er vel sett með varnartengilið en félagið hefur Wilfred Ndidi innan sinna raða. Vangaveltur eru um hvort Leicester sé að búa sig undir að selja hann.

Antonio Conte er að taka til í sínum leikmannahópi hjá Inter.

Real Betis vill ekki missa Carvalho en gerir sér grein fyrir því að kannski sé nauðsynlegt að selja hann vegna breytts landslags fjárhagslega vegna heimsfaraldursins.
Athugasemdir
banner
banner