Conor Gallagher hefur verið með betri mönnum Crystal Palace á þessu tímabili.
Miðjumaðurinn hæfileikaríki er í láni hjá félaginu frá Chelsea, en það er óvissa með framtíð hans.
Miðjumaðurinn hæfileikaríki er í láni hjá félaginu frá Chelsea, en það er óvissa með framtíð hans.
Crystal Palace hefur ekki gefið upp vonina á því að halda Gallagher. Steve Parish, stjórnarformaður Palace, viðurkennir að hann myndi elska það að fá Gallagher aftur til félagsins fyrir næsta tímabil.
„Framtíð hans er ekki í okkar höndum. Hann og Chelsea munu taka ákvörðun... ef allir telja það rétt í stöðunni, þá myndum við elska að fá hann aftur."
Það verður erfitt fyrir Gallagher að komast í byrjunarliðið hjá Chelsea og verður áhugavert að sjá hvaða ákvörðun verður tekin; hvort hann verði lánaður aftur eða hvað.
Athugasemdir