Spænski stjórinn Mikel Arteta vildi kannski lítið tjá sig um dómgæsluna í kvöld og fannst Paul Tierney og dómarateymi hans eyðileggja annars ágætan leik en hafði Arteta eitthvað til síns máls eftir allt saman?
Rob Holding og Son Heung-Min voru í blóðugri baráttu í fyrri hálfleiknum og braut enski varnarmaðurinn nokkrum sinnum á Son í leiknum áður en hann var rekinn útaf á 33. mínútu.
Það var hins vegar atvik á 11. mínútu sem Tierney leit algjörlega framhjá. Holding greip utan um Son og enduðu þeir báðir í grasinu.
Þegar atvikið er skoðað nánar virðist Son gefa Holding olnbogaskot áður en hann kom sér á lappir en það var ekki skoðað frekar.
Hægt er að sjá það atvik hér fyrir neðan.
Nothing about this?? pic.twitter.com/kFPY5v2Mcv
— GoonerViews (@GoonerViews) May 12, 2022
Athugasemdir