Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. júní 2018 22:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Griezmann er búinn að ákveða framtíð sína
Óvíst er hvort að Griezmann verði áfram hjá Atletico
Óvíst er hvort að Griezmann verði áfram hjá Atletico
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann, framherji Atletico Madrid og franska landsliðsins segist vera búinn að taka ákvörðun um framtíð sína um hvar hann mun spila á næsta tímabili.

Griezmann var sterklega orðaður við Manchester United síðasta sumar en nú er hann orðaður við Barcelona.

Griezmann skoraði 29 mörk í 49 leikjum fyrir Atletico á síðasta tímabili.

Frakkinn kallaði til blaðamannafundar í dag en vildi ekki gefa það upp hvort hann yrði áfram hjá Atletico eða myndi fara í annað lið.

„Í dag er ekki dagurinn um að tala um framtíð mína. Já ég er nú þegar búinn að ákveða framtíð mína en ég ætla ekki að tala um hana í dag. Þetta er hvorki staður né stund," sagði Griezmann sem er staddur í undirbúningi með Frakklandi fyrir heimsmeistaramótið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner