Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari og Helgi Kolviðsson aðstoðarþjálfari hafa ákveðið að gefa leikmönnum frí á æfingu á morgun, miðvikudag.
Íslenska liðið kom til Rússlands á laugardag og æfði í dag þriðja daginn í röð á glæsilegum velli í Kabardinka í Gelendzhik.
Í upphaflegu plani var gert ráð fyrir æfingu á morgun en nú hefur því verið breytt.
Liðið fær frí á morgun og æfir síðan á æfingavellinum í Kabardinka í Gelendzhik á fimmtudag.
Síðdegis á fimmtudag flýgur liðið til Moskvu þar sem það æfir síðan á föstudaginn fyrir leikinn gegn Argentínu á laugardag.
Athugasemdir