Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 12. júní 2018 19:19
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Vináttulandsleikur: Pólland með öruggan sigur á Litháen
Lewandowski fer heitur til Rússlands en hann skoraði tvö í kvöld
Lewandowski fer heitur til Rússlands en hann skoraði tvö í kvöld
Mynd: Getty Images
Pólland 4 - 0 Litháen
1-0 Robert Lewandowski ('19)
2-0 Robert Lewandowski ('33)
3-0 Dawid Kownacki ('70)
4-0 Jakub Blaszczykowski ('82)

Pólland fékk Litháen í heimsókn í vináttulandsleik í kvöld en Pólland er að leggja lokahönd á undirbúning sinn fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi sem hefst á fimmtudag.

Pólland munu treysta mikið á Robert Lewnadowski á HM og hann fer heitur til Rússlands en hann skoraði tvö fyrstu mörk Póllands í kvöld.

Dawid Kownacki, leikmaður Sampdoria á Ítalíu skoraði þriðja mark Póllands áður en Jakub Blaszczykowski, leikmaður Wolfsburg innsiglaði öruggan 4-0 sigur Póllands á Litháen.

Þetta var síðasti leikur Póllands fyrir heimsmeistaramótið en þeir leika í H-riðli en það er riðillinn sem fer síðastur af stað.

Með Póllandi í riðli eru Japan, Senegal og Kólumbía.
Athugasemdir
banner
banner
banner