Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 12. júní 2019 19:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Roma stuðningsmenn reiðir út í Dzeko á Instagram
Mynd: Getty Images
Margt bendir til þess að Edin Dzeko muni skipta um lið í sumar. Dzeko er mikið orðaður við vistaskipti frá Roma til Inter Milan.

Í dag setti hann mynd af sér inn á Instagram og stuðningsmaður Inter skrifaði undir myndina og bað Dzeko um að koma til félagsins.

Dzeko líkaði við svarið frá stuðningsmanninum og þetta sáu einhverjir stuðningsmenn Roma tóku eftir því og létu í sér heyra.

Tveimur tímum seinna hafði Dzeko tekið til baka að hann hafi líkað við svarið.

Antonio Conte tók á dögunum við Inter og er hann sagður hafa mikinn áhuga á því að fá til sín bosníska framherjann.
Athugasemdir
banner
banner
banner