Franski þjálfarinn Zinedine Zidane ætlar ekki að taka við Paris Saint-Germain en spænski miðillinn AS Diario hefur heimildir fyrir þessum tíðindum.
PSG hefur síðustu daga verið í viðræðum við ZIdane og var félagið tilbúið að bjóða honum veglegan launapakka og veruleg völd þegar það kemur að félagaskiptum.
Franskir fjölmiðlar sögðu Zidane nálægt því að taka við PSG en nú er staðan önnur.
AS greinir frá því að Zidane hafi hafnað PSG í þriðja sinn og hugur hans sé að fylgjast með stöðu mála hjá franska landsliðinu.
Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, er að íhuga það að hætta eftir HM í Katar og er það draumur Zidane að taka við eftir mótið.
Hann hefur því ákveðið að hafna tækifærinu að þjálfa PSG og mun félagið þurfa að leita annað.
Mauricio Pochettino verður rekinn frá félaginu á næstu dögum en Cristophe Galtier, þjálfari Nice, hefur einnig verið orðaður við þjálfarastöðuna.
Athugasemdir