Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. júní 2022 10:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hákon Rafn leysir Ingvar af hólmi í landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon Rafn Valdimarsson hefur verið valinn í A-landsliðið fyrir lokaleik liðsins gegn Ísrael í Þjóðadeildinni á morgun.


Hann kemur inn í hópinn fyrir Ingvar Jónsson sem er meiddur. Hákon lék alla þrjá leikina fyrir u21 árs landsliðið sem tryggði sér umspilssæti fyrir lokakeppni EM á næsta ári.

Hákon hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir Íslands hönd en það voru leikir gegn Suður-Kóreu og Úganda í janúar síðastliðnum.

Ísland er tveimur stigum á eftir toppliði Ísrael þegar tveir leikir eru eftir í keppninni. Toppliðið tryggir sér þátttökurétt í A deild Þjóðadeildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner