Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. júní 2022 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hópur U23 kvenna valinn - Hlín á meðal leikmanna
Hlín í leik með Piteå í Svíþjóð. Þar hefur hún leikið vel.
Hlín í leik með Piteå í Svíþjóð. Þar hefur hún leikið vel.
Mynd: Piteå
Búið er að tilkynna U23 landsliðshóp kvenna sem mætir A-landsliði Eistlands í æfingaleik þann 24. júní næstkomandi, en leikið verður í Eistlandi.

Eistland mun tefla fram A landsliði í leiknum, sem verður skráður sem A-landsleikur, en Ísland mun tefla fram U23 landsliði og mun Jörundur Áki Sveinsson stýra íslenska liðinu í leiknum.

U23 landslið kvenna hefur einu sinni áður mætt A landsliði, en það var árið 2016 þegar íslenska liðið mætti pólska A landsliðinu og gerðu liðin 1-1 jafntefli. Þess utan hefur liðið leikið tvo U23 leiki, gegn Skotlandi ytra árið 2012 og gegn Póllandi í Kórnum í febrúar 2015.

Það er því ekki á hverjum degi sem þetta lið fær verkefni og verður spennandi að sjá hvernig fer.

Í hópnum eru tveir leikmenn sem spila í Svíþjóð en annars bara leikmenn úr Bestu deildinni og einn leikmaður úr Lengjudeildinni, Dagný Pétursdóttir úr Víkingi.. Hlín Eiríksdóttir, sem gerði mjög sterkt tilkall í A-landsliðið fyrir EM, er í þessum hóp.

Hópurinn:
Andrea Rut Bjarnadóttir - Þróttur R.
Arna Eiríksdóttir - Þór/KA
Ásdís Karen Halldórsdóttir - Valur
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir - Selfoss
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving - Afturelding
Barbára Sól Gísladóttir - Selfoss
Birta Georgsdóttir - Breiðablik
Dagný Pétursdóttir - Víkingur R.
Diljá Ýr Zomers - Häcken
Gyða Kristín Gunnarsdóttir - Stjarnan
Hlín Eiríksdóttir - Pitea
Ída Marín Hermannsdóttir - Valur
Karen María Sigurgeirsdóttir - Breiðablik
Katla María Þórðardóttir - Selfoss
Sóley María Steinarsdóttir - Þróttur R.
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen - Afturelding
Tinna Brá Magnúsdóttir - Fylkir
Unnur Dóra Bergsdóttir - Selfoss
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner