Darwin Nunez framherji Benfica er á leið til Liverpool en hann mun skrifa undir 6 ára samning við félagið.
Þessi 22 ára gamli Úrugvæi mætti Liverpool í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem enska liðið hafði betur. Leikjunum lauk með 3-1 sigri Liverpool úti og 3-3 á Anfield.
Nunez skoraði tvö af mörkum Benfica í einvíginu. Klopp tjáði sig um hann eftir annan leikinn og fór vægast sagt fögrum orðum um hann.
„Virkilega fallegur drengur og góður leikmaður. Hann spilaði beint fyrir framan nefið á mér, sterkur og hraður gegn Konate. Hann var rólegur í færunum. Ef hann nær að vera heill á hann framtíðina fyrir sér," sagði Klopp.
"Extremely good looking boy! And a decent player..."
— Football on BT Sport (@btsportfootball) June 12, 2022
"If he stays healthy there's a big career ahead."
Jurgen Klopp liked what he saw from Darwin Nunez when Liverpool played Benfica back in April 🤝 pic.twitter.com/Stg6Kf0dQx