Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 12. júní 2022 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristian Nökkvi á lista með Gavi - „Hann er ótrúlega góður"
Icelandair
Kristian Nökkvi Hlynsson.
Kristian Nökkvi Hlynsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristian Nökkvi Hlynsson var algjörlega magnaður fyrir U21 landsliðið í undankeppninni sem var að klárast.

Þessi 18 ára gamli leikmaður Ajax var algjör leikmaður í liðinu sem tryggði sig inn í umspilið í gær. Það verður dregið þann 21. júní og munum við leika tveggja leikja einvígi um að komast inn í lokakeppnina.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær þar sem hann talaði meðal annars um U21 landsliðið. Hann var spurður sérstaklega út í Kristian, en það er ljóst að þarna er á ferðinni sérstakur leikmaður.

„Hann er ótrúlega góður, ótrúlega góður," sagði Arnar. „Hann nær einhvern veginn að stoppa tímann þegar hann fær boltann - þó að tíminn sé ekki stopp - og líta í kringum sig, og taka svo ákvörðun."

„Það gerist ekki þannig í raunveruleikanum, en hann nær einhvern veginn að pása tímann. Það er gríðarlegur eiginleiki hjá fótboltamanni."

„Hann skoraði ekki mikið með varaliði Ajax í vetur en þegar það dettur inn í hans leik - og ef hann helst heill - þá mun virði hans aukast gríðarlega. Skólinn sem hann fær úti er fullkominn."

„Það sem vekur athygli manns er hvernig hann býr til pláss. Hann nýtir tæknina sína gríðarlega vel. Tæknin hjá mörgum er það hversu vel leikmaður getur rakið boltann, en hjá honum er það hversu fáar snertingar hann getur notað til þess að gera hlutina," sagði Arnar.

Í síðustu viku var birtur listi á Twitter-síðunni Football Wonderkids, síðu sem er með tæplega 40 þúsund fylgjendur og fjallar um unga og efnilega fótboltamenn. Á listanum var farið yfir efnilegustu miðjumennina sem eru fæddir árið 2004 og þar er Kristian á lista með Gavi, miðjumanni Barcelona.


Útvarpsþátturinn - Landsliðin og Víkingar með Arnari Gunnlaugs
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner