Erik ten Hag, nýráðinn stjóri Manchester United á Englandi, hefur tekist að sannfæra Frenkie de Jong um að koma til félagsins frá Barcelona. Þetta kemur fram í Mirror.
Spænska félagið lét De Jong vita í síðasta mánuði að Manchester United væri á höttunum eftir honum en leikmaðurinn tjáði Barcelona að hann vildi ekki fara til Englands.
Ten Hag, sem þjálfaði De Jong hjá AJax fyrir nokkrum árum, hafði samband við De Jong og náði að sannfæra hann um að koma til United. Hann tjáði honum að hann ætlaði að koma United aftur í röð bestu félaga heims og að hugmyndin væri að byggja liðið í kringum hollenska miðjumanninn.
United er í viðræðum við Barcelona um De Jong en Barcelona hafnaði 60 milljón punda tilboði félagsins á dögunum. Börsungar vilja fá 68 milljónir punda auk bónusgreiðslna.
Ten Hag telur að hann geti náð því besta úr De Jong og finnst honum og Bert Marwijk, fyrrum þjálfara hollenska landsliðsins, að Barcelona hafi ekki notað hann rétt frá því hann kom frá Ajax fyrir þremur árum.
„Ef Frenkie spilar í því hlutverki sem hann ætti að vera að spila þá verður hann ekki bara besti miðjumaður í Evrópu, heldur besti leikmaður heims," sagði Bert van Marwijk, fyrrum þjálfari hollenska landsliðsins meðal annars á dögunum.
Athugasemdir