Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. júlí 2018 19:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
Fabregas þakkar Conte - Chelsea á eftir að staðfesta brottför
Conte virðist vera búinn að fá sparkið.
Conte virðist vera búinn að fá sparkið.
Mynd: Getty Images
Það bendir allt til þess að Antonio Conte sé að yfirgefa Chelsea en félagið sjálft á þó eftir að staðfesta sögusagnirnar sem komust á flug í morgun.

Cesc Fabregas hefur hinsvegar hent sér á Twitter og þakkað Conte fyrir tímann hans hjá Chelsea sem ýtir enn undir þá orðróma um að Conte hafi verið rekinn.

Miðjumaðurinn þakkað Conte fyrir að hjálpa liðinu að sigra Ensku úrvalsdeildina og vinna FA bikarinn. Hann óskaði ítalska þjálfaranum ennfremur góðs gengis í framtíðinni.

Nú er spurning hvort að Chelsea muni staðfesta fréttirnar í kvöld en það verður að teljast ansi líklegt að félagið gefi frá sér yfirlýsingu á næstunni.




Athugasemdir
banner
banner