Gleðin var ósvikin hjá leikmönnum Króatíu eftir að þeir lögðu England 2-1 í gær og tryggðu sér sæti í úrslitum HM gegn Frökkum á sunnudag.
Zlatko Dalic, þjálfari Króata, birti í dag skemmtilegt myndband á Instagram þar sem leikmenn Króata sjást fagna á hóteli eftir leikinn í gær.
Maður með gítar hélt uppi stemningunni og leikmenn Króatíu tóku lagið með honum. Sumir leikmenn fóru upp á borð og stemningin var mikil.
Króatíumenn fóru í gegnum þriðju framlengingu á HM í gær en þeir hafa nún stuttan tíma til að undirbúa sig fyrir úrsiltaleikinn á sunnudag.
Hér að neðan má sjá stemninguna á hótelinu í gær.
Athugasemdir