Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. júlí 2018 14:37
Magnús Már Einarsson
Sky: Búið að reka Conte frá Chelsea
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur rekið Antonio Conte en Sky á Ítalíu greinir frá þessu í dag.

Chelsea hefur ekki staðfest þessar fréttir en fleiri miðlar eru með þessi tíðindi í dag.

Ekki er hægt að segja að þessar fréttir komi á óvart en sögusagnir hafa verið um brottrekstur Conte í marga mánuði.

Maurizio Sarri, fráfarandi þjálfari Napoli, er að taka við Chelsea og væntanlega verður tilkynnt um ráðningu hans á næstu dögum.

Conte varð enskur meistari á sínu fyrsta tímabili en illa gekk á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner