Sjö leikir eru samtals á dagskrá í íslenska boltanum í dag en KFG og ÍR mætast meðal annars í 2. deild karla á Samsung-vellinum.
KFG og ÍR hafa bæði verið í smá basli á leiktíðinni en þau er með 12 stig, hlið við hlið í 9. og 10. sæti deildarinnar. Það má því búast við hörkuleik í Garðabænum klukkan 19:15 í kvöld.
Inkasso-deild kvenna verður í fullum gangi. Haukar og Grindavík mætast á Ásvöllum og þá fera Fjölnismenn í Laugardalinn og spila gegn Þrótturum. ÍR-ingar fara norður og spila á Sauðárkróki á meðan Skagastúlkur kíkja í Mosfellsbæ.
Í 4. deild karla eru tveir leikir. Snæfell og KB eigast við í Stykkishólmi í B-riðlinum á meðan Álafoss og Stokkseyri leika í C-riðli.
Leikir dagsins:
2. deild karla
19:15 KFG-ÍR (Samsung völlurinn)
Inkasso deild kvenna
19:15 Haukar-Grindavík (Ásvellir)
19:15 Þróttur R.-Fjölnir (Eimskipsvöllurinn)
19:15 Tindastóll-ÍR (Sauðárkróksvöllur)
19:15 Afturelding-ÍA (Varmárvöllur - gervigras)
4. deild karla - B-riðill - 4. deild karla
20:00 Snæfell-KB (Stykkishólmsvöllur)
4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
20:00 Álafoss-Stokkseyri (Tungubakkavöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir