„Þegar Fríða (Hólmfríður Magnúsdóttir) kom til baka þá hélt ég að hún myndi bara koma rólega til baka. Hún er náttúrulega nýbúin að eignast barn og það hefur komið mér á óvart hvað hún hefur komið sterk inn í þetta. Þvílíkur kraftur og hún dregur vagninn fyrir Selfoss. Maður ætlaði ekkert að gera neinar kröfur á það. Þær eru komnar í 4. sætið,“ sagði Hulda Mýrdal á Heimavellinum þegar rætt var um hvað og hverjar hefðu komið á óvart í fyrri hluta Pepsi Max deildarinnar.
Mist Rúnarsdóttir tók undir með Huldu.
„Sammála. Þegar ég sá hana í leiknum gegn Fylki tók hún 90 mínútur og hún var að stinga Árbæjarunglinga af á 90. mínútu.“
„Það er tvennt sem hefur komið mér á óvart“, sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir, gestur Heimavallarins. „Það hefur komið mér á óvart hvað Þór/KA er langt frá Val og Breiðablik. Ég spáði þeim svo sem í 3. sæti en engu að síður þá bjóst ég við meiri samkeppni frá þeim.“
„Svo hefur komið mér á óvart hvað eru margir ungir leikmenn, mjög ungir, að spila stór hlutverk í sínum liðum. Og eru að stíga upp í það. Stelpur fæddar 2001, 2002 og 2003.“
„Er það jákvætt? Hvar eru gömlu konurnar? spurði Mist Rúnarsdóttir þá en umræða hefur skapast að undanförnu um aldursdreifingu leikmanna í deildinni og því velt upp af hverju það séu ekki fleiri eldri leikmenn að spila.
„Ég held það sé bara á báða bóga,“ svaraði Bára. „Ég held það séu að koma upp ákveðin kynslóðaskipti hjá konunum eins og hjá körlunum. Það er þessi knattspyrnuhallakynslóð. Það eru kannski bara meiri gæði í þeim fyrr. Það er eflaust bara jákvætt en svo vill maður auðvitað halda deildinni jafnari. Valur og Breiðablik eru náttúrulega langefst. En Breiðablik varð auðvitað Íslandsmeistari í fyrra með næstyngsta liðið í deildinni þannig að þetta hlýtur að vera gott fyrir framtíðina.“
Smelltu hér til að hlusta á Heimavöllinn
🔥Nýr þáttur🔥
— Heimavöllurinn (@heimavollurinn) July 11, 2019
🚀Lokahóf fyrri hluta Pepsi Max🚀
◾️Úrvalslið fyrri umferðar, besti ungi og eldri leikmaðurinn, óvæntustu atvikin, tilþrifin, vonbrigðin og allt hitt sem skiptir máli◾️
💥9.umferðin,toppbaráttan í Inkasso & allt það helsta af leikmannamarkaðnum💥#fotboltinet pic.twitter.com/4fXqqYrLNx
Athugasemdir