Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 12. júlí 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búið að útnefna nýjan fyrirliða Real Madrid
Nýr fyrirliði Real Madrid.
Nýr fyrirliði Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, hefur útnefnt nýjan fyrirliða liðsins fyrir komandi leiktíð.

Sergio Ramos hefur verið fyrirliði síðustu leiktíðir en hann er farinn annað. Hann er farinn til Paris Saint-Germain í Frakklandi og mun væntanlega enda ferilinn þar.

Hinn 33 ára gamli Marcelo er tekinn við fyrirliðabandinu af Ramos.

Marcelo er brasilískur vinstri bakvörður sem er á leið inn í sitt 16. tímabil með Real Madrid.

„Það er heiður og mikil ábyrgð sem fylgir því að vera fyrirliði stærsta félags heims. Ég er ótrúlega heppinn," segir bakvörðurinn reynslumikli.
Athugasemdir
banner
banner
banner