Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mán 12. júlí 2021 23:20
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
„Greinilega mjög erfitt að sjá þegar boltinn fer yfir línuna á Stjörnuvelli þegar Stjarnan á í hlut"
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Frammistaðan heilt yfir góð, sérstaklega fyrri hálfleikur. Þá erum við að leysa hlutina vel, skorum eitt mark sem að... það er mjög erfitt að sjá þegar boltinn fer yfir línuna á Stjörnuvellinum greinilega, þegar Stjarnan á í hlut, en svona er þetta bara. En svo náum við ekki að spila okkur út úr pressunni í seinni hálfleik. Náum ekki að tengja inn á miðjuna og förum að sparka boltanum of mikið fram og einmitt þanngi fáum við á okkur fyrsta markið," sagði svekktur Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir tap gegn Val.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  2 Valur

Stjarnan fer til Keflavíkur í næstu umferð.

„Við getum tekið margt jákvætt úr því sem við höfum verið að gera undanfarið í sumar. Töluvert breytt Keflavíkurlið frá því úr leiknum hér í markalausu jafntefli. Það verður bara mjög jafn leikur, það er ég alveg viss um."

Naya Regina Lipkens varði mark Stjörnunnar í kvöld, í fjarveru Chante Sherese Sandiford, sem er meidd.

„Hún er meidd og verður það í einhverjar vikur. Meiddist á kálfa á æfingu í gær og við ræddum við Víkinga og Lipkens, við þökkum Víkingum kærlega fyrir liðlegheitin þar og samvinnuna. Hún stóð sig hrikalega vel, ég er gríðarlega ánægður með hana. Chante er frá í allavega mánuð held ég."

Betsy Doon Hassett er á Ólympíuleikunum með landsliði Nýja Sjálands og var því ekki með Stjörnunni í kvöld. Kristján býst við að hún verði ekki með í næstu tveimur leikjum.

„Að við skyldum spila svona vel, sérstaklega fyrrihálfleikinn og hún var ekki með okkur í dag á móti toppliðinu. Hún er búin að spila gríðarlega vel í sumar, þannig það stundum sást ekki að hana vantaði en kannski vantaði hana einmitt í seinni hálfleik til að bera upp boltann á miðjunni," sagði Kristján að lokum.

Athugasemdir
banner
banner
banner