Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 12. júlí 2021 21:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-kvenna: Áslaug Munda með tvö og Hildur komst á blað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 0 - 4 Breiðablik
0-1 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('34 )
0-2 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('55 )
0-3 Taylor Marie Ziemer ('61 )
0-4 Hildur Antonsdóttir ('90 )
Lestu um leikinn

Breiðablik lagði í kvöld Fylki að velli, 0-4, í tíundu umferð Pepsi Max-deildar kvenna.

Íslandsmeistararnir leiddur 0-1 þegar gengið var til búningsherbergja. Áslaug Munda skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 34. mínútu. Það mark skoraði hún beint úr hornspyrnu!

Áslaug Munda bætti við öðru marki á 55. mínútu og Taylor Marie Ziemer bætti við þriðja marki Blika á 61. mínútu.

Hildur Antonsdóttir innsiglaði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Hildur lék í síðustu umferð sinn fyrsta leik eftir meiðsli og í kvöld var hún á skotskónum, tæp tvö ár síðan hún skoraði síðast.

Öruggur sigur Blika staðreynd. Fylkir er í næstneðsta sæti með níu stig eftir tíu leiki en það kemur í ljós í kvöld í hvaða sæti Breiðablik endar umferðina.
Athugasemdir
banner
banner
banner