Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   lau 12. ágúst 2017 18:54
Brynjar Ingi Erluson
Brian McLean: Njótum augnabliksins
Brian McLean í leiknum í kvöld
Brian McLean í leiknum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brian McLean, leikmaður ÍBV, var ánægður með bikarsigurinn á FH í dag en liðið fagnaði vel og innilega eftir leik. Það verður hörkustemming í Eyjum í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  0 FH

McLean var með betri mönnum vallarins í dag og hjálpaði liðinu að vinna þennan sögufræga sigur.

„Þetta er ótrúlegt. Þetta hafa verið magnaðar síðustu vikur fyrir mig og ég kom hingað og að geta haft áhrif og vinna undanúrslitaleikinn og að lyfta bikurum er geggjað. Frábært fyrir stuðningsmennina og ég vona að þeir njóti kvöldsins," sagði Brian.

„Ég elska að vinna og þetta eru frábærir strákar. Við viljum nýta þetta svona augnablik og fara með þetta í deildina og koma okkur í betri stöðu en við erum í."

„Við náðum að koma okkur yfir og hefðum getað bætt við fleiri mörkum fyrir hálfleik. Einbeitingin var geggjuð og varamennirnir héldu sama fókus og þeir sem byrjuðu. Þetta er magnað, sérstaklega fyrir stuðningsmennina."

Það verður væntanlega tekið vel á móti Eyjamönnum í kvöld. Það verður líf og fjör á Eyjunni.

„Þetta verður sérstakt, sérstaklega eftir síðustu helgi. Við erum atvinnumenn, svo við njótum augnabliksins en við þurfum reyndar að einbeita okkur að næsta leik sem er á miðvikudag," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner