Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   lau 12. ágúst 2017 18:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Derby: Ég var með gleðitár í augunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég vil byrja á því að þakka guði. Það er góð tilfinning að vera meistari," sagði Derby Carillo, markvörður ÍBV, eftir 1-0 sigur á FH í bikarúrslitaleik í Laugardalnum í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  0 FH

FH-ingar pressuðu á Vestmannaeyinga í seinni hálfleiknum, en sem betur fyrir ÍBV náðu þeir að halda út.

„Þeir náðu mörgum fyrirgjöfum, en við tókumst vel á þær. Ég er viss um að margir hafa haldið niðri í sér andanum undir lokin, en okkur tókst að klára þetta og núna erum við meistarar."

Derby missti sæti sitt í ÍBV liðinu eftir slaka byrjun á tímabilinu, en hann hefur tekið sig á og er kominn aftur í liðið.

„Ég hef verið einbeittari og ég hef reynt að ofgera hlutina ekki. Það er það sem ég hef verið að vinna aðallega í."

Derby segist hafa verið með tár í augunum í leikslok.

„Þetta er frábært. Þegar flautan gall þá var ég með gleðitár í augunum. Það er góð tilfinning að koma til erlends lands og vinna úr þeim vandamálum sem þú lendir í. Ég þakka guði, fjölskyldu og kærustunni minni. Ég er gríðarlega ánægður með þetta."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner